Skip to product information
Hugleiðingar

Hugleiðingar

4.999 kr

„Lifðu ekki eins og þú eigir eftir að lifa í þúsund ár. Dauðinn  vofir yfir þér. Meðan þú lifir, meðan þú getur, vertu góður.“ - Markús Árelíus 

Árið 161 eftir Krist var Markús Árelíus gerður að keisara Rómaveldis. Sem æðsti handhafi veraldlegs valds var hann þar með umvafinn öllum þeim þægindum, vellystingum og auðæfum sem keisaraembættinu fylgdu. Það hefði verið auðvelt, jafnvel skiljanlegt, að maður í slíkri stöðu léti freistast til að þjóna sínum lægstu hvötum á kostnað ríkisins og borgara þess. Í stað þess að láta völdin spilla sér, líkt og margir forverar hans höfðu gert, ákvað Markús Árelíus að veita hinum klassísku höfuðdyggðum, þ.e. visku, réttlæti, hófsemi og hugrekki, leiðsagnarhlutverk í lífi sínu, starfi og stjórnarháttum.

     Markús Árelíus ætlaði sér aldrei að gefa verkið út, heldur skrifaði hann þessar hugleiðingar sínar til áminningar fyrir sjálfan sig, sem eins konar dagbók. Með skrifum sínum var hann að sannreyna sínar eigin hugmyndir, skerpa dómgreindina og styrkja sinn eigin karakter í ólgusjó tilverunnar. Í textanum kristallast því bæði sú viðvarandi barátta sem hann háði við sjálfan sig, sem og einlæg viðleitni hans til að verða betri maður með hverjum degi.

Hugleiðingar Markúsar Árelíusar eru nú loks fáanlegar á íslensku, í þýðingu Óttars Egils Arnarssonar. Bókin telur 159 blaðsíður, er harðspjalda og prentuð í Demy-stærð (135 × 216 mm). Þýðingin er gefin út árið 2025 og ber ISBN-númerið 978-9935-25-989-9.

Tengdar vörur